Kjölur Advisory
01
Um Kjöl Advisory

Brynjólfur Magnússon

STOFNANDI | FRAMKVÆMDASTJÓRI | LÖGFRÆÐINGUR

Brynjólfur Magnússon er stofnandi og framkvæmdastjóri Kjalar Advisory. Hann er lögfræðingur að mennt og býr yfir meira en áratugs reynslu af fyrirtækjabankastarfsemi, fjármögnun fyrirtækja, stefnumótandi ráðgjöf og flóknum viðskiptasamningum.

Á starfsferli sínum hefur Brynjólfur unnið náið með innlendum og erlendum fyrirtækjum, fjármálastofnunum og fjárfestingarsjóðum. Reynsla hans nær meðal annars til fyrirtækja- og verkefnafjármögnunar, sambankalána, fjármögnunar- og tryggingaskipulags, samningagerðar og samningaviðræðna ásamt undirbúningi og framkvæmd umfangsmikilla fjármögnunarverkefna.

Brynjólfur hefur sérþekkingu á gerð lána- og tryggingaskjala samkvæmt stöðlum Loan Market Association (LMA) og hefur lokið sérhæfðri þjálfun á vegum samtakanna í London.

Auk reynslu sinnar á sviði fjármála og viðskipta hefur Brynjólfur komið að stefnumótandi ráðgjöf á sviði stjórnmála, almannatengsla og samskipta við hagaðila. Hann hefur meðal annars stýrt kosningabaráttum og veitt ráðgjöf í verkefnum þar sem hagsmunir ólíkra aðila, stefnumótun og markviss samskipti skipta sköpum.

Í gegnum Kjöl Advisory veitir Brynjólfur sjálfstæða og persónulega ráðgjöf sem byggir á víðtækri starfsreynslu hans og öflugu tengslaneti sérfræðinga á sviði fjármála, lögfræði, opinberra mála, samskipta og fleiri sérsviða. Viðskiptavinir njóta þess að hafa einn traustan tengilið sem heldur utan um verkefni þeirra og tryggir að viðeigandi sérfræðiþekking sé nýtt eftir þörfum.

Starfshættir Brynjólfs einkennast af trúnaði, sjálfstæði, fagmennsku og skýrri áherslu á árangur, með það að markmiði að skapa raunverulegt virði fyrir fyrirtæki, eigendur þeirra og fjárfesta.

Portrait
02
Þjónusta

Þjónustuleiðir

01

Akkeri

Grunnráðgjöf

Akkerið táknar festu, öryggi og stöðugleika. Fyrir fyrirtæki sem vilja traustan ráðgjafa sér við hlið í daglegum rekstri og ákvarðanatöku.

02

Kompás

Viðskiptaráðgjöf

Kompásinn vísar veginn og hjálpar til við að halda réttri stefnu. Táknar framtíðarsýn, forystu og markvissa ákvarðanatöku. Fyrir fyrirtæki sem vilja móta framtíðina og sækja fram.

03

Segl

Vaxtarráðgjöf

Seglin nýta vindinn til að knýja skipið áfram. Táknar tækifæri, kraft og vöxt. Fyrir fyrirtæki í sókn, breytingum eða uppbyggingu.

04

Stýri

Heildarráðgjöf

Stýrið ræður stefnu skipsins. Táknar forystu, yfirsýn og stjórn. Fyrir fyrirtæki sem vilja náið og viðvarandi samstarf við Kjölur, með aðgangi að sérfræðiþekkingu eftir þörfum.

03
Hafa samband

Tölum saman

Símanúmer

+354 865 2295

Kjölur Advisory

Barónsstígur 6, 101 Reykjavík

© 2026 Kjölur Advisory. Allur réttur áskilinn.